Sýndarmennska!

Ætli miðstjórn ASÍ og SA séu að móta þessar hugmyndir í sínu horninu hvor?

Ætli þetta verði ekki "Átakafundur" þar sem illa lyktandi ályktanir verða samþykktar.

Þessir aðilar eru allir að vinna saman í ótal nefndum og ráðum á vegum Ríkisins ásamt því að sitja saman í stjórnum Lífeyrissjóða með forkálfum stéttarfélaganna.

Þetta er mál sem er löngu búið að ákveða!

Gylfi sagði í viðtali í gær að sá möguleiki væri fyrir hendi að SA myndi segja upp kjarasamningum.  Hvað er maðurinn að selja??

Það eru ákveðin fyrirtæki sem standa mjög illa og önnur ekki. Þau sem standa verst eru þau fyrirtæki sem stjórnendur, eigendur "SA" skuldsettu upp fyrir haus í góðærinu.

Hverjir taka skellinn?

Þeir sömu og venjulega! Við. 

Hvað gerir Verkalýðsforystan? Það sem SA segir þeim að gera!


mbl.is Ræða frestun kjaraviðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

20-40.000 atvinnuleysingjar og afgangurinn á lúsarlaunum. Þeir sem eru forustullaunþega samtaka í dag verða það ekki á morgun óháð því hvað þeir eru að plotta í augnablikinu.

Júlíus Björnsson, 23.1.2009 kl. 11:56

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk fyrir vinarboð. Ég þigg það vegna þess að það er greinilegt að ég verð að fylgjast með blogginu þínu miðað við þessa færslu!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 23.1.2009 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband