Viljum við sömu stjórnendur Existu?

Hvað hafa Bakkavararbræður gert til að verðskulda traust sjóðsfélaga fyrir því litla sem eftir er af brunarústum Existu? Við höfum fyrirmyndir á borð við Stoðir, Eimskip og Straum. 

Fyrir "raunverulega" hverja eru nauðarsamningarnir?

Langstærstu fjárfestingar Lífeyrissjóðs Verslnarmanna voru í Kaupþingi 3,2 % ,Exista 4% og Bakkvör 6,7%. þegar mest lét og var sjóðurinn meðal stærstu eigenda þessara fyrirtækja.

Verðmæti hlutabréfa sjóðsins í þessum félögum í árslok 2007 var yfir 30 milljarðar en eru verðlaus í dag. Talið er að sjóðurinn hafi tapað um 10-12 milljörðum á töpuðum skuldabréfum í þessum félögum sem gerir heildartapið um 42 milljarðar, óvissa um uppgjör gjaldeyrissamninga er ekki tekin með og ekki tap á eignahlut sjóðsins í Skipti.

Tengslin:

Gunnar Páll Pálsson

Formaður VR

Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verslunarmanna.

Stjórnarmaður í Kaupþingi

Lánanefnd Kaupþings

Eiginkona Gunnars Páls

Ásta Pálsdóttir

Er Lykilstarfsmaður hjá Kaupþingi og er skráð á innherjalista hjá FME sem slíkur.

Fjölskylda hennar á og rekur Atafl, gömlu keflavíkurverktaka. Atafl samsteypan sem fékk 50 milljónir Evra eða yfir 9 milljarða lán í gegnum Íslandsverktaka og tengd félög frá Kaupþingi samkvæmt lánabók. Ásta Pálsdóttir er systir Bjarna Páls stjórnarformanns Atafls sem er þá mágur Gunnars Páls sem sat í lánanefnd bankans, stjórn og var stórnarformaður LV og formaður VR.

Þau Ásta og Gunnar eru bæði talin hafa fengið niðurfellingar á ábyrgðum vegna hlutabréfakaupa og eða annara fjárfestinga.

Þorgeir Eyjólfsson

Fyrrv.forstjóri Lífeyrissjóðs Verslunarmanna.

Framkv.stjóri eða Managing Director, Nasdaq OMX Nordic Exchange group.

Eiginkona Þorgeirs er Sigríður Kristín Lýðsdóttir starfsmaður hjá Kaupþingi.

Sonur Þorgeirs Lýður Þorgeirsson er sérfræðingur á fyrirtækjasviði Kaupþings.

Dóttir Þorgeirs Guðrún Þorgeirsdóttir er framkv.stjóri eignastýringar hjá Existu og vara stjórnarmaður hjá Lýsingu samkv.FME.

Víglundur Þorsteinsson

Fyrrv.stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verslunarmanna og eigandi BM-Vallár.

Fékk 62,2 mlljónir Evra eða um 11.2 milljarða í lán frá Kaupþingi samkv. Lánabók.

BM-Vallá hefur ekki skilað inn ársreikningum til ríkisskattstjóra síðan 1995.

En það hlýtur að vera ein af forsendum lánshæfi fyrirtækja ásamt því að þurfa að standa skil á slíkum gögnum samkv.lögum.

Exista var stærsti eigandi Kaupþings.

Samkvæmt lánabók og fréttum fjölmiðla höfðu stjórnendur loka ákvörðunarvald um það hverjir fengu lán hjá bankanum.

Fyrirtæki sem tengjast tveimur fyrrverandi stjórnarformönnum Lífeyrissjóðs Verslunarmanna fengu tug milljarða fyrirgreiðslur frá kaupþingi,stærstu fjárfestingu lífeyrissjóðsins og voru meðal stærstu skuldara bankans. Hver voru veðin? Höfðu ákvarðanir þeirra um óverjandi stórlánveitingar til helstu eigenda bankans eitthvað að gera með fyrirgreiðslur til fyrirtækja þeim tengdum? Tóku þeir eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni umbjóðenda sinna?

Er þetta skýringin á því að lífeyrissjóður verslunarmanna vill með öllum tiltækum ráðum ganga til nauðasamninga við Bakkavararbræður um stjórn Existu sem er eingöngu hrip lek regnhlíf yfir aðrar sjálfstæðar einingar félagsins. Stjórnendur Existu vildu rúmlega 1 milljarð á ári fyrir umsýslu skuldasúpunnar. Í dag má ætla að það fáist aðeins um 5% upp í kröfur. Ekki hafa afskriftir LV verið í samræmi við þær heimtur svo mikið er víst.

Í fréttum dagsins hefur rekstrarkostnaður verið togaður niður í 150 milljónir. Ég er ansi hræddur um að inn í þá tölu vantar árangurstengdar heimtur á kröfum,ekki ósvipaður díll og Straumverjar ætluðu að plata kröfuhafa til að ganga að en þar var "rekstrarkostnaðurinn" ekki hátt hlutfall af heildinni. 

Hvaðan koma peningarnir? Ætla Bakkabræður að blóðmjólka fyrirtækin sem eftir eru í samstæðunni og setja rekstrarkostnað Existu í forgang. Neytendur borga svo brúsan í formi hækkana á vöru og þjónustu viðkomandi fyrirtækja innan samsteypunnar. Niðurskurður og uppsagnir hljóta að vera óumflýjanlegar.Síðan lengja þeir gjalddaga í skuldafréfaútgáfum sínum en þá geta lífeyrissjóðirnir dreift tapinu smá saman yfir langan tíma?

Það er útilokað að þetta reikningsdæmi gangi upp hjá þessum mönnum.

Hvað veldur því að Lífeyrissjóður Verslunarmanna hugleiði slíka samninga við þessa aðila sem léku sjóðinn svo grátt þegar klárlega liggur fyrir að mest fáist upp í kröfurnar með að skera burt blóðsugurnar.

Á hvaða forsendum,við hverja og á hvaða gengi gerði Lífeyrissjóður Verslunarmanna gjaldeyrissamninga upp á 93 milljarða? Af hverju er stjórnarmönnum VR og sjóðsfélögum neitað um þessar upplýsingar sem geta haft veruleg áhrif á lífeyrisréttindi okkar.

Þegar Pabbi (Þorgeir Eyjólfsson forstjóri LV) tók stöðu með íslensku krónunni fyrir 93 milljarða, Tók dóttirin (Guðrún Þorgeirsdóttir framkv.stjóri eignastýringar Existu) Stöðu gegn krónunni.

Gunnar Páll formaður VR, stjórnarformaður LV staðfesti svo samningana fyrir báða aðila en hann átti sæti í stjórn Kaupþings og í lánanefnd Kaupþings. 

Til að stærstu eigendur Kaupþings "Exista" sem gerir kröfu í gamla kaupþing upp á 100 milljarða fyrir það eitt að taka stöðu gegn krónunni, og Kjalar sem gerir kröfu upp á 180 milljarða, þurfti einhvern til að veðja á móti.

Ef Exista tók stöðu gegn krónunni sem skilar þeim yfir 100 milljörðum í tekjur og á sama tíma lét viðskiptavini Kaupþings taka stöðu með krónunni og viðskiptavini Lýsingar fjármagna bílasamninga sem önnur kaup í erlendri mynt og fengu svo Lífeyrisjóðina til að veðja á móti sér fyrir restinni.

Ef þetta kallast ekki að taka stöðu gegn íslensku krónunni þá get ég í raun ekki útskýrt það hugtak frekar. Þessir snillingar hafa kallað þessa gjörninga gjaldeyrisvarnir og eru á góðri leið með að komast upp með það.

Ef þetta var ekki stöðutaka gegn krónu, hver er þá meiningin á bakvið slíka gjörninga í íslands lögum.

Var það hrein tilviljun að krafa sjóðsfélaga um breytingar og gegnsæi voru hafðar að engu þegar nýr stjórnarformaður LV, Ragnar Önundarson réð "nýjan" framkv.stjóra sjóðsins til starfa. Fyrir valinu varð Guðmundur Þórhallsson fyrrum framkvæmdastjóri eignastýringar sjóðsins sem bar meðábyrgð á fjárfestingum hans með Þorgeiri Eyjólfssyni sem þáði 34 milljónir í laun ásamt fríðindum fyrir árið 2008.

Var ráðningasamningur Guðmundar sem er leynilegur til 7 ára tilviljun? En í 7 ár þarf sjóðurinn að halda í bókhaldsgögn, eftir þann tíma má kveikja á pappírstæturum.

Lífeyrissjóður Verslunarmanna tapaði langmest á viðskiptum sínum við Bakkavararbræður en samt vill sjóðurinn rétta þeim á silfurfati einræðisvald yfir einu verðmætunum sem eftir eru í Existu.

Þetta er álíka ábyrgðafullt og að rétta Sigmundi Erni bíllykla eftir kvöldþing.

Hvað er það sem þolir ekki dagsljósið? Það erum við fólkið sem eigum þessa peninga! Ekki einhverjir útrásargæðingar sem hafa lokað að sér í fílabeinsturnum.

Með því að gera nauðarsamninga komumst við aldrei að hinu sanna. 

Hvenær segjum við sjóðsfélagar:

Stopp! Hingað og ekki lengra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Fín grein Ragnar.

Sendu hana í moggann.

Hinsvegar er spuningin, hvernig getum við sjóðsfélagar í Líf.sj. Verslunarmanna haft áhrif á stjórn sjóðsins?

Sigurbjörn Svavarsson, 27.8.2009 kl. 15:02

2 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Með þetta í alla fjölmiðla landsins,frábær úttekt hjá þér.

Þessi "menn" svitni ekki einu sinni í viðtölum fyrir framan alþjóð.Þetta kallar maður harðsvíraða gangstera. Eða kannski skortir þá alla tilfinningagreind!

Konráð Ragnarsson, 27.8.2009 kl. 15:51

3 Smámynd: Eygló

Við þennan lestur líður manni eins og maður horfi ofan í skólpbrunn.

Eygló, 27.8.2009 kl. 16:48

4 identicon

NEI það viljum við örugglega ekki.

(IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 20:29

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

anks sjálfur

Jón Snæbjörnsson, 27.8.2009 kl. 21:21

6 identicon

Hafðu þökk fyrir vinnu þína og rannsókn.

Tek undir með öðrum hér, senda þetta í blöðin og/eða kastljósið.

Guðgeir (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 23:37

7 identicon

Heill og sæll; Ragnar Þór - sem og; þið önnur, hér á síðu !

Hætt er við; að þessi lýður, hvern Ragnar tiltekur, hér að ofan, skilji ekkert annað tungutak, en gínandi byssuhlaupin, úr þessu, eða útlegð varanlega, af landi brott, gott fólk.

Því er nú verr; og miður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 01:04

8 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Það þarf að vekja frekari athygli á þessu. Ekki gera fjölmiðlar landráðamannanna það nema til komi þrýstingur á þá.

Ævar Rafn Kjartansson, 30.8.2009 kl. 21:00

9 identicon

Sæll Ragnar

 Ertu til í að birta þessa grein í Morgunblaðið og / eða Fréttablaðið ?

Er í VR og greiði og hef greitt í Lífeyrissjóð Verslunarmanna í 25 ár,

er orðið nokkuð bumbult  þessa daganna.

kv, Aðalheiður

Aðalheiður (IP-tala skráð) 31.8.2009 kl. 00:49

10 Smámynd: Ragnar Þór Ingólfsson

Þakka innlit og athugasemdir.

Tók áskorun ykkar og sendi þetta á moggan. Við skulum svo sjá til hvort þetta verði birt.

Varðandi það hvernig við getum haft áhrif á stjórnendur sjóðsins er númer eitt að láta í okkur heyra.

Það er merkilegt hvernig þessu kerfi er stjórnað bak við tjöldin af ASÍ og SA og ótrúlegt hvernig stöðugleiki þessara valda er tekin framyfir hagsmuni okkar sjóðsfélaga. 

Ragnar Þór Ingólfsson, 31.8.2009 kl. 17:28

11 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ragnar, hafðu þökk fyrir vinnu þína sem er auðsæ bak við svona grein.

Hinsvegar vil ég færa til nokkuð sem ekki er mjög í umfjölluninni núna.

Fyrir allmörgum árum var sett lög um Verðtryggingu og fljótlega eftir það tók þáverandi fjármálaráðherra ÓRG  af verðtryggingu launa.

Síðan þá hefur ekki verið hægt að taka lán ,,í sömu mynt og tekjum er aflað" og allt þvaður um það í Hagfræðingum lygi sem sett er fram GEGN betri vitund, nema þeir séu svona skini skroppnir.

Sömu aðilar og tóku trygginguna af launum, tókst á undra skömmum tíma að koma verðbólgu upp í um 140 stig þannig að svonefnt ,,eigið fé" þeirra sem voru á þeim árum, að vera að koma húsi eða starfsemi undir og yfir sig, misstu lóðbeint allt sitt framlag og gott betur.  Þa´varð til  svonefndur Sigtúnshópur, með Ögmund í fararbroddi.

Ástæður þessa óðaverðbólgu voru einfaldar, sviksemi í útflutningi og undanskot á gjaldeyri, sem var þá landlægur og náði auðvitað upp í æðstu staði SÍS og fl fyrirtækja, sem töldu sig þa´vera ódauðleg og réttborin til að ráða öllu.

Margir urðu gjaldþrota um 1990 en hófu aftur baráttuna með dugnaði og elju, flestir hverjir.

Nú er enn verið að höggva í hinn sama knérunn og eigið fé manna sem, eru að koma yfir miðjan aldur, er nú að brenna upp vegna aðgerða og aðgerðaleysis stjórnvalda.  Hækkun höfuðstóla er svo skelfileg að ekki tekur nokkru tali og tölur birtar af SÍ virðast vera að mestu leiti falsaðar eða í það minnsta færðar verulega niður í stílinn.

Síðan þegar þessi sama kynslóð ætlar nú að taka sér lífeyri í hinum svo vel VERÐTRYGGÐU sjóðum sínum verður svarið auðvitað:  Sorry vinur, sjóðnum þínum var stolið þarna manstu um 2006 til 2010 Við töpuðum svo miklu á erlendri áhættu  (félögum í eigu Íslendinga að mestu á erlendri grund) sem við fengum að lána til til þess að ,,dreifa áhættunni" og hafa sem breiðastan grunn undir lífeyrinn ykkar en SORRY allt bú, farið bara á ellilífeyrinn.

Með virðingu fyrir baráttu þinni.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 2.9.2009 kl. 13:38

12 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Frábær grein Ragnar

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.9.2009 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband