Verkalýðshreyfingin og lífeyrissjóðamafían !

Í tilefni dagsins þar sem kjósa á nýja stjórn í VR má ég til með að birta frábæra grein eftir Rúnar Kristjánsson.

Það var víða litið svo á, að þegar Ásmundur Stefánsson var gerður að forseta ASÍ, hafi ákveðin kaflaskil orðið innan verkalýðshreyfingarinnar. Þá gerðist  það, að hagfræðin settist að fullum völdum í alþýðusamtökunum og hefur ekki sleppt þeim síðan. Fáir munu telja þann atburð af því góða.

Tengslin við grasrótina, sjálfan verkalýðinn, voru á margan hátt rofin, og forustuliðið fór fyrir alvöru að hrokast upp gagnvart þeim sem það átti að vera í forsvari fyrir. Ásmundur Stefánsson þótti á margan hátt dæmigerður fulltrúi þeirra viðhorfa. Hann átti sáralítið samfélag við verkalýðinn og var sem forustumaður í ASÍ aldrei maður á réttum stað.

Eftir hann komu líka menn með svipað hugarfar, menn sem helst virtust gera sér það að sérstöku markmiði, að hreykja sér upp og hafa það gott á kostnað hins vinnandi fólks. Verkalýðshreyfingin fór sífellt neðar í áliti og hinir svokölluðu verkalýðsforingjar urðu brátt ekkert nema liðónýtar heybrækur í öllum skiptum við þá er semja þurfti við.

Það var sama hvort í hlut átti Grétar Þorsteinsson, Halldór Björnsson, Gunnar Páll Pálsson, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, eða Sigurður Bessason, allt hefur þetta lið verið gjörsamlega gagnslaust sem forsvarsaðilar fyrir vinnandi fólk. Verkalýðshreyfingin þarf á öðru að halda en linkulegum tauhálsum og puntudúkkum á skrifstofum. Ekkert af þessu fólki hefur unnið sér nafn eða orðstír meðal vinnandi fólks og mun aldrei gera.

Guðmundur jaki hafði sína galla, og mér persónulega fannst aldrei mikið til hans koma, en hann var samt álitinn af mörgum vera verkalýðsforingi. Það átti hann þó einkum að þakka framgöngu sinni á fyrri árum, þegar hann var undir stjórn eldri og reyndari manna í hreyfingunni, sem sáu til þess að krafturinn sem vissulega bjó í honum, nýttist í störfum fyrir heildina.

Einleikur Guðmundar jaka og valdabrölt á seinni árum bætti engu við orðstír hans...... en hann var þó allt önnur manngerð og töggur í honum, miðað við þær mannlufsur sem á eftir honum hafa tyllt sér í valdasætin í verkalýðs-hreyfingunni.

Og nú hefur Gylfi Arnbjörnsson verið kosinn forseti ASÍ og ekki kæmi það mér á óvart að honum tækist að fara fram úr Ásmundi Stefánssyni í starfslegum öfugsnúningi og er þá mikið sagt.

Ég er alfarið þeirrar skoðunar að Gylfi og hans líkar hafi aldrei gert neitt að gagni fyrir verkalýðshreyfinguna í landinu. Ég tel þvert á móti að menn af hans tagi hafi verið iðandi afætur á hreyfingunni til fleiri ára, því launakjör þeirra og bitlingar hafa ekki verið í neinu samræmi við það sem eðlilegt getur talist.

Seinni tíma forusta verkalýðshreyfingarinnar hefur þannig, að minni hyggju, samanstaðið af forpokuðum vesalingum, sem hafa virst hugsa um það eitt að halda völdum og maka krókinn í eigin þágu. Ærin þörf væri að fara ofan í saumana á ýmsu sem gert hefur verið af þessum mönnum á undanförnum árum. Það gæti verið að ýmislegt kæmi þá í ljós sem mönnum kæmi illilega á óvart.

Innan verkalýðshreyfingarinnar var mjög fljótlega byggð upp í kringum lífeyrissjóðina algjör varnarmafía, sem allar götur síðan hefur staðið vörð um mismununarkerfi þessara sjóða, eins og önnur mafía hefur varið kvótakerfið.

Lífeyrissjóðakerfið hefur aldrei þjónað hagsmunum almennings í þessu landi. Það hefur verið arðráns-svikamylla frá fyrstu tíð og stöðugt verið varin af fláum forustumönnum í verkalýðshreyfingunni, en þar sem víðar virðast jafnan þjónustumenn, sem vinna í þágu einhverra annarra en fólksins í landinu.

Í lífeyrissjóðakerfinu hefur verið safnað saman með lögvörðum ránskap feykilegu fjármagni sem síðan hefur verið notað til margra óheyrilegra hluta. Það hafa verið stunduð pólitísk hrossakaup, lánveitingar hafa oft þótt þar daunillar af spillingu og miklum fjármunum hefur verið sóað í ýmislegt sem engin rök hafa verið fyrir. Sú saga þætti ljót ef hún væri greind að fullu og gerð opinber.

Valdafíknir forustumenn í verkalýðshreyfingunni hafa lengi notið þess að skipa hina og þessa vildarvini og gæðinga sem bankastjóra og bitlingaþý í lífeyrissjóðamafíunni og svo hefur verið ráðskast með fjármuni fólksins fram og aftur, lánað út og suður í alls konar áhættumál sem fyrr segir. Svo hafa yfirlýst lífeyrisréttindi fólksins í þessum sjóðum verið skorin  miskunnarlaust niður þegar fé hefur tapast í slíku fjárhættuspili. Þarna hefur, að margra mati, verið stundaður sami verknaðurinn og var kallaður þjófnaður í gamla daga, áður en það fór að vera í tísku að stela og óheiðarleiki fór að flokkast undir eðlilega sjálfsbjargarviðleitni.

Auðvitað átti að hafa lífeyrismál þjóðarinnar í miklu einfaldara formi. Það átti bara að vera einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn í Tryggingastofnun ríkisins.

Þar áttu allir að sitja við sama borð og efri árin að taka mið af samfélagslegum jöfnuði, en sérhagsmunaöflin vildu náttúrulega hafa þetta öðruvísi.

Áfram skyldi misréttið ríkja og það alveg fram á grafarbakkann !

Nú hefur vinnandi fólk í landinu tapað tugmilljörðum króna í lífeyrissjóðunum vegna áhættuleikfimifíknar mafíuveldisins og enginn er talinn ábyrgur !

Það hljóta allflestir að sjá þá knýjandi þörf sem á því er, að hreinsa verulega til innan verkalýðshreyfingarinnar og lífeyrissjóðakerfisins.

Kannski ætti sú hreinsun að byrja á nýkjörnum forseta ASÍ og formanni VR ?

Takk fyrir frábæra grein Rúnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru talsmenn verðtryggingarinnar, talsmenn eigna upptökunnar hjá íbúða eigendum í landinu, talsmenn ráðstafanna sem gera ekkert annað en að lengja í hengingarólinni hjá þorra íbúðar eiganda. Væri ekki eðlilget framhald á mótmælunum að krefjast afsagnar þessara veruleikafyrrtu forkólfa okkar og taka almennilega á þessu lífeyriskerfi. Það getur  enginn búið við þetta kerfi lengur. Það getur ekki verið eðlilegt að að standa uppi eigna laus eftir tugi ára streð fyrir þeim sjálfsögðu mannréttindum að koma sér þak yfir höfuðið

G. Erlingsson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 09:32

2 Smámynd: Ágúst Guðbjartsson

Þetta er frábær grein

Ágúst Guðbjartsson, 27.1.2009 kl. 10:05

3 identicon

Frábær grein takk fyrir þetta.

(IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 11:26

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

virkilega góð grein..

ASI er samband Aumingja og ekkert annað..

Ég hef samið fyrir mig sjálfur og vil helst ekkert af þessu lífeyrissjóðakerfi þeirra vita... 

Óskar Þorkelsson, 27.1.2009 kl. 12:33

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það ætti að vera forgangsverkefni launafólks að komast undan oki skildu greiðslna til lífeyrissjóða og stéttarfélaga.   Þá myndi þetta fræðingastóð sjálfkrafa hverfa af launaskrá almennings og yrðu að nota fræðin sjálfu sér til framdráttar.

Magnús Sigurðsson, 27.1.2009 kl. 16:24

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Öll grein Rúnars er eins og töluð úr mínu hjarta.  Ég kynntist þessari spillingu fyrst hjá minni stéttarfélögum en VR - siðleysið grasserar ekki síður hjá þeim litlu.

Ég þekki ekki þann mann/menn sem nú bjóða sig fram til forystu hjá VR, sem er jú stærsta stéttarfélagið á hinum almenna vinnumarkaði.  En ef það gæti hjálpað honum/þeim eitthvað mætti  etv skoða hví varaformaður VR var rekinn á sínum tíma þegar gamli formaðurinn MLS hætti vegna aldurs og þurfti að koma að öðrum kandidat.   Skoða mætti í framhaldi af því hvernig núverandi formaður var kosinn.

Kolbrún Hilmars, 27.1.2009 kl. 18:15

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Orð i tíma töluð

Jón Aðalsteinn Jónsson, 27.1.2009 kl. 20:56

8 Smámynd: Frikkinn

Það verður seint hægt að fella múrana í verkalýðshöll ASÍ og Eflingar. Engin tilviljun að þeir eru á sama stað.

Frikkinn, 27.1.2009 kl. 21:50

9 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Sæll Ragnar,

Í bloggi þínu birtir þú glefsur úr grein eftir Rúnar Kristjánsson Frambjóðanda í VR. Þar er auðvitað margt rétt sagt og annað ekki.

Þessi stofnanabragur var auðvitað orðinn landfastur áður enn Ásmundur Stefánsson var kjörinn forseti. Þessi þróun hófst á meðan Hannibal Valdimarsson var forseti ASÍ og síðar Björn Jónsson. Þetta voru alþingismenn og síðar ráðherrar. Þeir störfuðu ekki hjá ASÍ þannig að samtökin voru farin að reka sig sjálf með starfsmönnum sínum.

 

Á þessum tíma voru atvinnurekendur með her hagfræðinga og mjög erfitt var að standast þeim snúninga nema að ASÍ væri einnig með hagfræðinga. Mig minnir að Ásmundur hafi komið til starfa um 1972 sem hagfræðingur ASÍ. Hann hafði þá þegar mikil áhrif.

Þegar Ásmundur var kosinn var í raun forystukreppa í ASÍ. Ég var mjög efins um að rétt væri að kjósa hann þar sem hann var svona hagfræðingu og starfsmaður ASÍ.

Virkni félaganna fór nú vaxandi á ný innan ASÍ. það er ekki fyrr enn 5 árum seinna að farið var að bera á þessum stofnanabrag. Ég kenndi sífellt lélegri forystumönnum stéttarfélaganna um þessa þróun og einnig verulega breytingar á starfsemi þeirra er fólst í meiri þjónustu við félagsmenn. Sífellt algengara varð að formenn félaganna voru launaðir starfsmenn. Með þeirri breytingu hófst þessi stofnanabragur. Þannig að þetta er ekki alveg hárnákvæmt hjá Rúnari.

 

Það annað sem Rúnar skrifar og ætla ég ekki að segja mína skoðun á. Ég hef margskrifað um þetta mál en ég myndi nota allt annað orðfæri og forðast alhæfingar. Einnig hef ég allar götur frá 1969 verið andstæðingur þessa lífeyrissjóðakerfis og marglýst ýmiskonar agnúum á því.

Hitt er rétt að flestir þessir forystumenn hafa verið í störfum um áratugaskeið og neistinn sem sennilega hefur einhvern tíma brunnið innan með þeim er löngu horfinn.

 

Ef það á að fara í það verk, að endurskoða stjórnarskránna er nauðsynlegt að skoða lýðræðið í félögum sem fólki er gert með lögum og dómum verið gert skylt að vera í. Í slíkum félögum verður að vera virkt lýðræði og það verður einnig að vera miklu auðveldara að skipta út forystumönnum. Einnig um lýðræðið í stjórnum lífeyrissjóðanna, á meðan þeir eru við lýði.

kveðja Kristbjörn 

Kristbjörn Árnason, 28.1.2009 kl. 10:05

10 identicon

Hreinsunin þarf að hefjast.ekki seinna en strax.

Hallur Eiríksson.

Hallur Eiríksson (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 17:30

11 identicon

Frábær grein og ég tek undir hvert orð. Takk fyrir að birta þetta.

Það er langt síðan ég áttaði mig á að lífeyrissjóðirnir væru peningahítir sem hafa ekkert með hag sjóðsfélaganna að gera.

Réttast væri að við gerðum uppreisn gegn lífeyrissjóðakerfinu og neituðum að borga í sjóðina. Ég velti fyrir mér hvort það hreinlega standist mannréttindi að skylda fólk til að borga í einhverja ruglsjóði af tekjum sínum. Er það ekki bara eignaupptaka, m.ö.o. þjófnaður?

Kannski rétt að mæta með trommurnar næst við höfuðstöðvar lífeyrissjóðanna og stéttarfélaganna?

Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 21:21

12 Smámynd: Ragnar Þór Ingólfsson

Þakka öllum sem hér skrifa og þá sérstaklega Rúnari sem lagði greinina til.

Ég er sammála öllum.

Theodór:

Það er komin tími á að fara með trommurnar upp í Lífeyrissjóð Verslunarmanna þó fyrr hefði verið.

kveðja

Ragnar 

Ragnar Þór Ingólfsson, 30.1.2009 kl. 12:12

13 Smámynd: Árni Gunnarsson

Slæmt að ég sá ekki þessa færslu fyrr en nú. Ég sé að Kristbjörn Árnason segir höfund greinarinnar vera frambjóðanda í VR. Án þess að hafa kannað málið held ég að þetta sé misskilningur og að greinin sé eftir Rúnar Kristjánsson húsamið og skáld á Skagaströnd.

Árni Gunnarsson, 4.2.2009 kl. 20:26

14 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Ég biðst afsökunar á því að skuli hafa sagt eitthvað rangt um þennan Rúnar. En mér fannst ég einmitt hafa lesið það á þessari síðu. En sé það ekki núna.

Kristbjörn Árnason, 4.2.2009 kl. 23:59

15 Smámynd: Ragnar Þór Ingólfsson

Greinin góða er einmitt eftir fagurpennan Rúnar Kristjánsson Húsasmið og skáld á skagaströnd. Ég fékk góðfúslegt leyfi frá Rúnari til að birta þessa samskoðun okkar á blogginu mínu enda smellpassar þetta við hugleiðingar mínar, þá tala ég um innihaldið ekki framsetningu

Hér er linkur á bloggið hans "Undir Borginni". 

Ég var einmitt að spá í hvort hann hafi einhverntíman verið VR frambjóðandi. Veit ekki til þess.

Kveðja

Ragnar 

Ragnar Þór Ingólfsson, 5.2.2009 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband