Þeir sem völdin hafa.

það er mín skoðun að hin eiginlegu völd í þjóðfélaginu koma frá pólitískt skipuðum nefndum og ráðum. þessar nefndir og ráð móta stefnur, ráða í opinberar stöður og stjórnir á "sérlega hlutlausan hátt" osfrv. þessar opinberu nefndir og ráð eru líklega á bilinu 600-800 talsins og eru skipaðar af flokkselítunni.

Þessi valdasamsetning á sér langa sögu og hefur tryggt valdaelítu þessa lands "söðugt lýðræði".

Það sem merkilegt er að þessi völd ná vel út fyrir hinn eiginlega pólitíska ramma og eru engu minni í verkalýðshreyfingunni og lífeyrissjóðunum.

Forseti ASÍ Gylfi Arnbjörnsson er virkur meðlimur í flokks elítu Samfylkingarinnar og hefur lengi klæjað í fingurnar að komast á þing, ekki þarf að tíunda tengsl VR og Sjálfstæðisflokksins,Ögmund Jónasson og BSRB osfrv.

Þessar sterku pólitísku tengingar verkalýðsforystunnar eiga sér langa sögu og eru Samtök Atvinnulífsins þar í stóru hlutverki.

Í hinum endalausu ráðum og nefndum sem fara með hagsmunamál alþýðunnar ásamt sætum í stjórnum lífeyrissjóða eiga iðulega til helminga verkalýðsforystan og samtök atvinnulífsins. Þetta tryggir þann stöðugleika sem valdhaföfum þessa lands er mikið í mun að sé til staðar enda tryggir stöðugleiki á vinnumarkaði "stöðugt lýðræði"

Þessi hjúskaparheit SA og ASÍ gera það að verkum að þessi hagsmunaöfl eru sífellt að vinna saman í gegnum nefndir og stjórnir. 

Hinir eiginlegu hagsmunir beggja er "Stöðugleiki". Stöðugleiki tryggir völd þessara aðila sem eru ofar hagsmunum launafólks. Hagsmunir launafólks er vissulega stöðugleiki en þegar launatölur eru skoðaðar,vinnuframlag og samningagerð stéttarfélagana er alltaf hallað á launafólk. Enda þarf ekki að fara mörgum orðum um vinnuframlag,verðtryggingu,skiptingu á ábyrgðum útlána til launafólks og lánveitenda,afnámi verðtryggingar launa ásamt himinháu vaxtastigi sem heldur alþýðunni í gíslingu.

Man einhver eftir því þegar verkalýðsforystan samdi um aukin framlög í lífeyrissjóðina á kostnað launahækkana, sem er gott dæmi um samstarf ASÍ og SA enda finnst mér alltaf jafnbroslegt þegar ASÍ lofsyngur Samtök Atvinnulífsins.ASÍ telur þau vera lífsnauðsynleg og órjúfenlegan þátt sem ráðandi afl í Lífeyrissjóðunum.

Megin vandinn hlýtur að liggja í því að launafólk getur ekki valið í hvaða stéttarfélagi það er í.

Stéttarfélagi er úthlutað starfsmanni sem greiðir allt að 1% af launum sínum hvort sem honum líkar betur eða verr. Fjöldi félagsmanna liggur því ekki í hversu góð störf viðkomandi stéttarfélag hefur unnið fyrir félagsmenn sína heldur í hvaða atvinnugrein hann/hún starfar í.Það má því setja spurningarmerki um hina eiginlegu hagsmuni sem stjórnendur stéttarfélagana þjóna þ.e. félaga sinna eða sinna eigin hagsmuna og þeirra valda sem skapa starfsumhverfi félagana og mynda "Stöðugleikan". 

Það er alltaf gaman að skoða dæmi um tengingar en hér er dæmi um nefndarsetu Ingibjargar R.Guðmundsdóttir sem gegnir starfi sem framkvæmdastjóri Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og er varaformaður ASÍ.

Hvað ætli hún fái í laun fyrir öll þessi nefndarstörf og stjórnarsetu utan við það sem henni er borgað fyrir störf sín sem framkvæmdastjóri. Hvernig getur eitthvað gott og með viti komið út úr svo þéttskipuðu prógrammi?

Þetta minnir mig á þegar 17ára strákur kom til mín og var að sækja um vinnu,hann rétti mér stoltur plagg með nöfnum 14 vinnuveitenda sem hann hafði unnið hjá og taldi vera til marks um mikla reynslu. Ég bennti honum á að þetta væri nú ekki það besta sem hann gæti lagt fram sem meðmæli ef ég ætti að treysta honum fyrir því starfi sem ég var að ráða í. 

í mörgum þessum nefndum og stjórnum eiga Samtök Atvinnulífsins sæti. 

Dæmi:

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,

Varaforseti ASÍ

Stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna Stjórnarmaður

Formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna

Trúnaðarráð VR

Samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskólastigi: Staða: Aðalmaður

Alþjóðanefn Formaður (Fastanefndir ASÍ)

Mennta og Útbreiðslunefnd (Fastanefndir ASÍ)

Lífeyrisnefnd varamaðaur (Fastanefndir ASÍ)

Skipulags og starfsháttanefnd formaður (Fastanefndir ASÍ)

Laganefnd (miðstjórn ASÍ)

Launanefnd (miðstjórn ASÍ)

Starfs-og Fjárhagsnefnd (miðstjórn ASÍ)

Stjórn Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma

Sóknarnefnd Neskirkju Formaður

Skólanefnd félgasmálaskóla alþýðu (Ríkið)

Starfsmenntaráð Varamaður (Ríkið)

Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs Stjórnarmaður(Ríkið)

Stjórn Vinnumálastofnunar Varamaður (Ríkið)

Stjórn Starfsmenntasjóðs Verslunar og Skrifstofufólks Stjórnarmaður

Skólanefnd Verslunarskóla Íslands, Varaformaður

Stjórn Evrópufræðiseturs á Bifröst Stjórnarmaður

Einnig sinnir hún fleiri nefndar og trúnaðarstörfum m.a. fyrir VR.

Kveðja

Ragnar Þór Ingólfsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst ótrúlegt hversu mörgum nefndum þessi ágæta kona situr í. Spyr þá, hvað er hún með í laun fyrir hverja nefndarsetu og HEFUR HÚN TÍMANN í þetta? Þetta hlýtur að taka það mikinn tíma að hún geti ómögulega ekki setið heils hugar í hverri nefnd. Er hún auk þess í fullu starfi við eitthvað? Ef svo er, þá á hún ýmislegt sameiginlegt með aðstoðakonu þingmanns sem vinnur 100% stöðu sem þjnustufulltrúi í LÍ og á kvöldin og helgar sem aðstoðarmaður...algjör brandari!

Ókunnug (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband