Kæru VR félagar - hvernig getum við snúið stöðunni, launafólki í hag.

Kæru VR félagar.

Fyrir rúmlega ári síðan fór hópur fólks af stað með báráttu fyrir breytingum innan VR.

Við vorum hópur fólks með hugsjónir sem vildi breytingar. Við vildum skoða bókhaldið, við vildum sjá breytingar í lífeyrissjóðnum, aukið gegnsæi í fjárfestingum og aukið lýðræði. Eitt helsta kosningamálið var að opna félagið fyrir félagsmönnum.

 Í dag er ár síðan og ekkert hefur breyst!

 Sá hópur sem fór fram í upphafi náði ekki meirihluta í félaginu og frá þeim tíma hafa tveir stjórnarmenn af þeim sex sem náðu kjöri í síðustu hallarbyltingu, tekið stöðu með núverandi meirihluta stjórnar.

Það er Ágúst Guðbjartsson, en hans helsta baráttumál var úrsögn úr ASÍ og vantraust á Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ. Ágústi var boðið sæti sem varamaður í miðstjórn ASÍ og hefur ekkert heyrst frá honum síðan.

Ásta Rut Jónasdóttir, varaþingmanni Framsóknarflokksins gagnrýndi verðtrygginguna harðlega og fyrrverandi formann fyrir að sitja í stjórn fyrirtækis og lífeyrissjóðs. Ástu var boðið sæti í lífeyrissjóðnum og hún hjálpaði svo í kjölfarið stjórnarmeirihlutanum að bola Bjarka Steingrímssyni úr varaformannssæti VR og tók sjálf við því embætti. Hún situr nú í stjórn í opinberu hlutafélagi. 

Kristinn Örn formaður vildi beita sér gegn verðtryggingunni sem hann kallaði krabbamein á samfélaginu.

Ofangreind hafa öll neitað að skrifa undir áskorun okkar gegn verðtryggingu sem og gegn öðru úrræðaleysi stjórnvalda á skuldavanda heimilanna. Þau hafa öll kosið gegn skoðun á lánveitingum án veða, til félaga tengdum Bakkavararbræðrum sem eru stærstu skuldarar lífeyrissjóðsins. Sami stjórnarmeirihluti hefur einnig lagt blessun sína yfir nauðasamninga við sömu menn sem bera ábyrgð á því ástandi sem launafólk stendur frammi fyrir í dag.

Þau hafa öll lokað bloggum sínum og heimasíðum þar sem helstu kosningamál þeirra voru aðgengileg.

Við fjögur höfum staðið með þeim málum sem við stóðum fyrir þegar við buðum okkur fram og félagsmenn kusu með afgerandi hætti.

Bjarki Steingrímsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson og Bergur Steingrímsson höfum einungis unnið okkur það til saka að standa við það sem við lofuðum félagsmönnum okkar að gera.

Meirihluti stjórnar hefur farið gróflega gegn vilja félagsmanna í krafti meirihlutavalds.

Við höfum því ákveðið að safna saman fólki á nýjan lista gegn uppstilltum lista stjórnarmeirihlutans og óskum við eftir stuðningi og framboðum í trúnaðarráð og stjórn nýja listans.

Nú þegar hafa nokkrir af þeim trúnaðarmönnum sem uppstillinganefnd stillti upp gefið sig fram og ætla að ganga til liðs við nýja listan.

Við skorum á alla trúnaðarmenn, trúnaðarráðsmenn og félgasmenn VR sem hafa áhuga á að fara í þennan slag með okkur að hafa samband í síma 847-7419 (Ragnar), 864-7077 (Guðrún) eða senda  tölvupóst á ragnar.ingolfsson@live.com, g-jo@live.com

Ef við viljum breytingar þá verðum við að kjósa breytingar!

Þetta er einstakt tækifæri sem við höfum til að ná fram raunverulegum breytingum.

Baráttukveðjur,

Bjarki Steingrímsson Stjórnarmaður í VR

Ragnar Þór Ingólfsson Stjórnarmaður í VR

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Stjórnarmaður í VR

Bergur Steingrímsson Stjórnarmaður í VR


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki alveg inni í öllum þeim málum sem þið eruð að taka á, en ljóst má vera að á brattann er að sækja og baráttan er bitur.

Sjálfur þurfti ég að taka afstöðu.  Ég var í Lífeyrissjóði verslunarmanna, en þar var mokað undir forstjórann í stað þess að greiða út lífeyri til lág-launa-fólks sem búið er að leggja inn alla sína starfsævi af takmörkuðum launum.

Ég gerði upp um áramótin og er farinn þaðan.

Eru þessi samtök - VR - náttúrulögmál ? 

Ég ráðlegg ykkur einfaldlega að stofna nýtt verSlunarmannafélag, t.d. Nýja Verslunarmannafélagið  í stað þess að berja hausnum við steininn, en slík iðja er ekki holl til lengdar    Nota má þá tækifærið og hefja alvöru launabaráttu fyrir hönd launþega.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 12.2.2010 kl. 18:25

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ragnar,gangi ykkur allt í haginn. ALDREI AÐ GEFAST UPP.

Helga Kristjánsdóttir, 13.2.2010 kl. 01:06

3 Smámynd: Pétur Steinn Sigurðsson

Ragnar ég tek undir með Helgu, ALDREI AÐ GEFAST UPP!!! Róm var ekki byggð á einni nóttu, en eins og skáldið sagði nýir vendir sópa best og þolinmæðin þrautir vinnur allar.

Þú átt minn stuðning vísan í baráttunni.

Pétur Steinn Sigurðsson, 13.2.2010 kl. 23:07

4 identicon

Baráttukveðjur!!

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 14.2.2010 kl. 22:16

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

VR samdi um á það sínum tíma í krafti meirihluta að lífeyrissjóðsgreiðslur  kæmu í stað launa leiðréttinga eftir að þau voru tekin úr sambandi við bólgu vísinn, ég mjög ósáttur enda ávaxta ég mitt fé betur en sjóðsliðið hér sem kann ekkert með fjármuni að fara á langtíma mælikvarða , hinsvegar er ég með Exel  í hausnum get því unnið í svefni.  

Séreignar lífeyrinn notaður til að greiða niður lán til annarra en launafólks?

Júlíus Björnsson, 17.2.2010 kl. 00:02

6 identicon

Verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvað er í gangi hjá VR.

Er eitthvað tregðulögmál í gangi.

Má ekki breyta neinu. Hvað með VISA kortin ?

Spilling kemur fyrst upp í hugann....................

Sigrún Unnsteimsdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband