16.2.2010 | 09:25
Verkalýðsforysta á Villigötum: Myntkörfulán og Úrræðin góðu!
Heimilin í sjálfskuldarábyrgð!
Við skoruðum á stjórnarmeirihluta VR að beita sér fyrir:
Raunverulegum úrræðum vegna myntkörfulána og stökkbreyttum höfuðstól húsnæðislána og hafni því úrræðaleysi sem í boði er.
Sjá svör mín með bláu en svör meirihlutans með rauðu.
Hér er fullyrt að öll núverandi úrræði séu "óraunveruleg". Ekki er hægt að taka undir það þó þau henti fólki misjafnlega. Úrræði af þessi tagi verða að vera efnahagslega og samfélagslega framkvæmanleg og gæta þarf jafnræðis og réttlætis. Stjórnvöld, í samráði við aðila vinnumarkaðarins - og þar með VR - eru að vinna og þróa frekari úrræði í gegnum stöðugleikasáttmálann. Vonandi kemur afrakstur þeirrar vinnu bráðlega í ljós.
Þarf að gæta jafnræðis og réttlætis? Ætli úrræðin verði tilbúin þegar dómstólar verða búnir að dæma þau ólögleg? Það er ekki seinna vænna að afraksturinn fari að skila sér 1 1/2 ári eftir hrun.Hvað hafa margar fjölskyldur gefist upp nú þegar eða þvingaðar til að afsala sér fjárhagslegu sjálfstæði sínu.
Þegar Lýsing og Kaupþing voru að ráðleggja fólki að taka myntkörfulán sem ÖRUGGA fjármögnun, voru eigendurnir, Exista og Kjalar að taka stórkostlega stöðu gegn íslensku krónunni og fara nú fram á yfir 300 milljarða eða umþb. 1/2 Icesave í uppgjör á slíkum samningum sem þeir gerðu við lífeyrissjóðina og fólkið í landinu í gegnum Kaupþing og Lýsingu, félög í þeirra eigu.
Þeir settu heimilin í sjálfskuldarábyrgð fyrir gegndarlausu fjármálasukkinu.
Það er með ólíkindum að hugsa sér að þessir skrúðkrimmar komi jafnvel út í plús með því einu að skuldajafna framvirkum gjaldmiðlasamningum á móti botnlausri skuldsetningu félaga í þeirra eigu.
Ég fullyrði hér með að úrræðaleysið sem stendur fólki til boða á ekkert skylt við raunverulegt siðferðislegt réttlæti.
Af hverju í ósköpunum tekur verkalýðsforystan, sem er að velta yfir 10 milljörðum á ári, ekki af skarið og ályktar gegn myntkörfulánunum sem eru að sliga fjölskyldur fjölda félagsmanna okkar.
Við höfum markaðslaunakerfi og þurfum að semja um launin okkar sjálf. Forsendubrestur verð- og gengistryggðra lána kemur verkalýðshreyfingunni ekki við og þeir sem vilja sækja rétt sinn borga það úr eigin vasa.
Fyrir hverja er meirihluti stjórnar VR að vinna? Í dag er lánskjarabaráttan ein eftir. Því sami meirihluti samþykkti án fyrirvara eina mestu kaupmáttarrýrnun í sögu félagsins með síðustu kjarasamningum.
Ég fullyrði hér með að núverandi úrræði eru til háborinnar skammar.
Hvernig er hægt að ætlast til að fólk taki á sig þann griðarlega skuldabagga sem hangir yfir okkur, í formi hærri lána, hærri skatta, skertari heilbrigðisþjónustu, hærra vöruverði þar sem yfirskuldsett eignarhaldsfélög þurfa að hækka vöruverð til að geta borgað skuldir eigenda sinna.
Myntkörfulánin eru að öllum líkindum ólögleg, Kaupmáttur er í frjálsu falli, verðbætur og gengistryggingar eru að sliga heimilin og sundra fjölskyldum en Verkalýðsforystan telur launafólk í ágætis málum??
Hvernig er hægt að réttlæta þessar klifjar í ljósi þess að ábyrgðamenn hrunsins eru enn við samningaborðið og eru að ná til baka þeim verðmætum sem þeir byrjuðu með.
Það er algerlega siðlaust að ætla almenningi að borga brúsann eftir útrásar sukkið á meðan gerendurnir hafa samningsstöðu innan bankanna.
Það er með öllu siðlaust og óskiljanlegt að þessir menn hafi samningsstöðu yfir höfuð.
Hverjir eru að gæta hagsmuna launafólks?
Formaður VR telur launafólk vera í ágætis málum. Ég tel formann VR vera á rangri hillu.
Ragnar Þór Ingólfsson
Stjórnarmaður í VR.
Næsta færsla er um launaþak forstjóra lífeyrissjóðsins sem ég lagði fram, hvernig formaður og stjórnarmeirihlutinn hafnaði sjálfsagðri skoðun á miljarða lánveitingum LV, án ábyrgða til Existu, Skipta og Bakkavarar en sjóðurinn hefur neitað að gefa upp hversu mikið þeir lánuðu þessum félögum. Mun ég birta yfirlit yfir skuldabréfaútgáfurnar, álit sem ég fékk frá FME um málið ásamt tölvupóstsamskiptum við framkv.stjóra og stjórnarmenn VR og LV vegna málsins. Einnig mun ég fjalla um kröfur LV á Kaupþing í þessu samhengi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
12.2.2010 | 17:21
Kæru VR félagar - hvernig getum við snúið stöðunni, launafólki í hag.
Kæru VR félagar.
Fyrir rúmlega ári síðan fór hópur fólks af stað með báráttu fyrir breytingum innan VR.
Við vorum hópur fólks með hugsjónir sem vildi breytingar. Við vildum skoða bókhaldið, við vildum sjá breytingar í lífeyrissjóðnum, aukið gegnsæi í fjárfestingum og aukið lýðræði. Eitt helsta kosningamálið var að opna félagið fyrir félagsmönnum.
Í dag er ár síðan og ekkert hefur breyst!
Sá hópur sem fór fram í upphafi náði ekki meirihluta í félaginu og frá þeim tíma hafa tveir stjórnarmenn af þeim sex sem náðu kjöri í síðustu hallarbyltingu, tekið stöðu með núverandi meirihluta stjórnar.
Það er Ágúst Guðbjartsson, en hans helsta baráttumál var úrsögn úr ASÍ og vantraust á Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ. Ágústi var boðið sæti sem varamaður í miðstjórn ASÍ og hefur ekkert heyrst frá honum síðan.
Ásta Rut Jónasdóttir, varaþingmanni Framsóknarflokksins gagnrýndi verðtrygginguna harðlega og fyrrverandi formann fyrir að sitja í stjórn fyrirtækis og lífeyrissjóðs. Ástu var boðið sæti í lífeyrissjóðnum og hún hjálpaði svo í kjölfarið stjórnarmeirihlutanum að bola Bjarka Steingrímssyni úr varaformannssæti VR og tók sjálf við því embætti. Hún situr nú í stjórn í opinberu hlutafélagi.
Kristinn Örn formaður vildi beita sér gegn verðtryggingunni sem hann kallaði krabbamein á samfélaginu.
Ofangreind hafa öll neitað að skrifa undir áskorun okkar gegn verðtryggingu sem og gegn öðru úrræðaleysi stjórnvalda á skuldavanda heimilanna. Þau hafa öll kosið gegn skoðun á lánveitingum án veða, til félaga tengdum Bakkavararbræðrum sem eru stærstu skuldarar lífeyrissjóðsins. Sami stjórnarmeirihluti hefur einnig lagt blessun sína yfir nauðasamninga við sömu menn sem bera ábyrgð á því ástandi sem launafólk stendur frammi fyrir í dag.
Þau hafa öll lokað bloggum sínum og heimasíðum þar sem helstu kosningamál þeirra voru aðgengileg.
Við fjögur höfum staðið með þeim málum sem við stóðum fyrir þegar við buðum okkur fram og félagsmenn kusu með afgerandi hætti.
Bjarki Steingrímsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson og Bergur Steingrímsson höfum einungis unnið okkur það til saka að standa við það sem við lofuðum félagsmönnum okkar að gera.
Meirihluti stjórnar hefur farið gróflega gegn vilja félagsmanna í krafti meirihlutavalds.
Við höfum því ákveðið að safna saman fólki á nýjan lista gegn uppstilltum lista stjórnarmeirihlutans og óskum við eftir stuðningi og framboðum í trúnaðarráð og stjórn nýja listans.
Nú þegar hafa nokkrir af þeim trúnaðarmönnum sem uppstillinganefnd stillti upp gefið sig fram og ætla að ganga til liðs við nýja listan.
Við skorum á alla trúnaðarmenn, trúnaðarráðsmenn og félgasmenn VR sem hafa áhuga á að fara í þennan slag með okkur að hafa samband í síma 847-7419 (Ragnar), 864-7077 (Guðrún) eða senda tölvupóst á ragnar.ingolfsson@live.com, g-jo@live.com
Ef við viljum breytingar þá verðum við að kjósa breytingar!
Þetta er einstakt tækifæri sem við höfum til að ná fram raunverulegum breytingum.
Baráttukveðjur,
Bjarki Steingrímsson Stjórnarmaður í VR
Ragnar Þór Ingólfsson Stjórnarmaður í VR
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Stjórnarmaður í VR
Bergur Steingrímsson Stjórnarmaður í VR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.2.2010 | 11:10
Verkalýðshreyfing á Villigötum: Verðtryggingin og lífeyrissjóðirnir.
Stjórnarmeirihluti VR endurspeglar brenglaðar hugmyndir ASÍ um hagsmunagæslu launþega á Íslandi. Til marks um það mun ég birta með tveggja til þriggja daga millibili úttekt á störfum stjórnarmeirihluta VR og verkalýðsforystunnar í heild sinni, séð með augum stjórnarmanns sem er sakaður um niðurrif og aðgerðarleysi.
Þetta er fyrsta færslan af 13 um þau mál sem ég hef lagt fram til stjórnar VR og hvernig meirihluti stjórnarinnar hefur kerfisbundið unnið gegn þeim málum og hagsmunum félagsmanna okkar.
Ég mun svo í lokin fara yfir það hverjir mynda þennan meirihluta, hvaðan þeir koma og hvað þeir lofuðu að gera fyrir félagsmenn sína en gerðu ekki.
Ég mun aldrei sætta mig við það að vera kallaður helsta vandamál launþegahreyfingarinnar fyrir það eitt að fylgja þeim málum eftir sem ég lofaði félagsmönnum VR að berjast fyrir.
Fyrst tökum við fyrir áskorun minnihutans til meirihluta stjórnar þann 13.Janúar síðastliðinn. Eftir að hafa gefist upp á aðgerðaleysi sama meirihluta í sama máli.
Formaður VR telur launafólk vera í ágætis málum. Ég tel formann VR vera á rangri hillu.
Verkalýðshreyfingin er að velta yfir 10 milljörðum á ári og uppsker ríflegan hluta launa okkar um hver mánaðarmót. Ég er líklega ekki sá eini sem kvartar yfir uppskerubresti.
Sjá svör mín með bláu en svör meirihlutans með rauðu.
Við skoruðum á stjórnarmeirihluta VR að beita sér fyrir:
1.Afnámi verðtryggingar tafarlaust og þak verði sett á vexti.
Í frjálsum markaðskerfum ákvarðast vextir og lánakjör á markaði og grundvallast á lánasamningum á milli lántaka og lánaveitanda. Það eru kostir og gallar við verðtryggð lán. Fyrir suma er kosturinn sá að afborganir eru lægri í upphafi en fara svo hækkandi út lánstímann. Til lengri tíma litið getur slíkt hentað lántökum vel.
Fyrir aðra henta hefðbundin nafnvaxtalán, en greiðslubyrði þeirra er þyngri í upphafi öfugt við verðtryggð lán og er greitt af höfuðstól frá upphafi.
Af þessu má dæma að meirihluti stjórnar VR styðji verðtrygginguna sem að mínu mati jafngildir vanhæfi viðkomandi aðila í stjórn stærstu hagsmunasamtaka launafólks á íslandi.
Skilja má kröfu þremenninganna þannig að þeir krefjist neikvæðra raunvaxta enda ekki ljóst hvar þeir vilja að vaxtaþakið liggi. Hvernig neikvæð ávöxtun getur samrýmst hagsmunum efnahagslífsins og t.d. sjóðfélaga í lífeyrissjóðum er vandséð. Er það virkilega ásetningur þremenningana að rýra eignir lífeyrissjóðsfélaga enn frekar sem myndi hafa í för með sér lækkun á greiðslum til elli- og örorkulífeyrisþega núna og í framtíðinni? Vilja þeir jafnvel ganga enn lengra og afnema verðtryggð afkomuréttindi þeirra líka? Lítil er samúð þeirra og samkennd með öldruðum og öryrkjum.
Í dag eru lífeyrissjóðir og bankar að stórlaga eignastöðu sína eftir útrásarsukkið, með stórfelldri eignaupptöku í fasteignum fólks í formi verðtryggingar og myntkörfulána. Þetta er ekkert annað en lögvarinn þjófnaður sem verkalýðsforystan á að beita sér fyrir að verði stöðvaður TAFARLAUST!
Það er til marks um fádæma þekkingaleysi meirihlutans á málefnum lífeyrissjóða um að afnám verðtryggingar rýri eignir sjóðsfélaga.
Er eignaupptaka í fasteignum framtíðarlífeyrisþega, til að borga þeim nokkrar krónur í lífeyri, að rýra framtíðarlífeyri þeirra?
Fasteignir okkar eru okkar mikilvægasti lífeyrir.
Heimilin eru okkar mikilvægasti lífeyrir og öryggisnet. Ef sjóðirnir tapa á braski sínu þá eiga fasteignir okkar að vera öryggisnetið sem grípur okkur í ellinni. OKKUR en ekki banka og lífeyrissjóði.
Hvað kostar það samfélagið þegar stórskuldugir árgangar fara á lífeyri, þegar lágmarks framfærsla fer að mestu leiti í afborganir af húsnæði?
Við hljótum að vilja skuld litla eða skuld lausa lífeyrisþega sem verða svo virkir neytendur í samfélaginu, atvinnulífinu til hagsbóta.
Hversu mikil var eign lífeyrissjóða í verðtryggðum eignum fyrir hrun? Rúm 20% voru í innlendum hlutabréfum (verðlaus í dag) rúmlega 40% voru í erlendum verðbréfum um 15% í skuldabréfum útrásarfyrirtækja og banka (að mestu verðlaus en voru verðtryggð) og 25 % sjóðsfélagalán og íbúðabréf ásamt öðrum verðtryggðum verðbréfum.
Lífeyrisréttindi eru EKKI verðtryggð. Hinsvegar er lífeyrissjóðum skylt samkv. lögum að ávaxta lífeyri að lágmarki 3,5% verðtryggt.
Lífeyrissjóðir hafa heimild til að skerða lífeyrisréttindi eða auka eftir því hvernig þeim gengur að ávaxta sig.
Þeim er skylt að reikna niður áunnin réttindi lífeyrisþega ef tryggingafræðileg staða þeirra er neikvæð sem nemur 10% eða meira. Lögunum var svo breytt í desember 2008 í 15% tímabundið.
Þetta þýðir að ef skuldbindingar lífeyrissjóðanna að núvirði og til framtíðar fara yfir neikvæð tryggingafræðileg mörk ber sjóðunum skylda að skerða lífeyrisréttindi.
Þetta þýðir að lífeyriréttindi á almennum vinnumarkaði eru ekki verðtryggð. Þau eru hinsvegar verðtryggð hjá ríkisstarfsmönnum sem hafa ríkistryggðan lífeyri. T.d. tap LSR (lifeyrissjóðs starfsmanna ríkis) þarf að bæta upp að stórum hluta með skatttekjum almennings.
Nú eru fyrstu lífeyrisþegarnir sem greitt hafa í lífeyrissjóði í 40 ár eða meira byrjaðir að taka út lífeyri. Í fæstum tilfellum stendur sá lífeyrir undir lágmarks framfærslu og þurfa lífeyrisþegar að stóla á greiðslur frá tryggingastofnun ofan á lífeyri frá stéttarfélagssjóðum. Ef lífeyrir skerðist,aukast greiðlur frá ríkinu þar sem lágmarks framfærslu er ekki náð. Til gamans má geta að þeir sem aldrei hafa greitt í lífeyrisjóði síðsatliðin 40 ár fá það sama og hinir nema að öllu leiti frá tryggingastofnun. Um þetta eru til fjölmörg dæmi.
Notkun verðtryggingar hér er alltof víðtæk og hefur skapað vítahring sjálfvirkra verðhækkana. Alþekkt er að fyrirtæki og stofnanir hafi réttlætt gjaldskrárhækkanir með vísan í vísitöluhækkanir án þess þó að þær hafi haft nokkur áhrif á rekstrargjöld þeirra. Þennan vítahring þarf að rjúfa. Sömuleiðis er það þjóðþrifamál að berjast fyrir niðurfellingu opinberra gjalda eins og stimpilgjalda sem hamla samkeppni á lána- og bankamarkaði.
Þessi vítahringur verður aldrei rofin nema með afnámi verðtryggingar. Þegar Ólafslögin voru sett árið 79' áttu þau að tryggja fjármagnseigendur gegn eignabruna sem myndaðist við óstjórn peningamála hér á landi. Þegar verðtrygging launa var svo afnumin 1982 en verðtrygging lána var látin halda, tala margir af okkar færustu hagfræðingum um mestu hagstjórnarmistök íslandssögunnar. Ég er sammála þeim.
Verkalýðsforystan lofaði launafólki afnámi verðtryggingar fljótlega í kjölfar afnáms verðtryggingar launa. 28 árum síðar hefur ekkert gerst. Það er komin tími til að efna gamalt loforð.
Hann er sorglegur og grunnur málflutningur pólitískra evrópusinna að evran sé EINA lausnin frá verðtryggingunni.
Á að nota verðtrygginguna sem skiptimynt fyrir atkvæði inn í evrópusambandið og reka þannig launafólk til atkvæða með byssusting í bakinu?
Þeir sem góla hvað hæst í gospelkór evrópusinna telja fólki trú um að vextir verði lægri,lánakjör betri og verðbólga lítil með upptöku Evru og að skuldastaða okkar hafi ekkert með það að gera.
Það eina sem breytir þeim kjörum sem í boði eru hverju sinni er greiðsluhæfni þess sem lánið tekur.
Ef kjör okkar verða betri innan ESB miðað við sömu skuldastöðu Íslands, hvað þurfum við þá að gefa eftir af sjálfstæði okkar og auðlindum til að fá betri lána kjör ? Ekki batnar skuldastaðan svo mikið er víst.
Krónan er hvorki betri né verri en hver annar gjaldmiðill hún er hugtak en ekki hlutur sem endurspeglast að langstærstum hluta í innistæðum í bankakerfinu sem verða til úr engu líkt og færslur í bókhaldskerfi.
Krónur verða til við kaup banka á skuldaviðurkenningum lántakenda sem fá andvirði þeirra yfirfært á bankareikinga sína með tölvufærslu.
Krónan er einkum frábrugðin matadorpeningum í því einu að hún er lögboðinn gjaldmiðill í viðskiptum innanlands og til kaupa á gjaldeyri.
Lausnin felst í því að stjórna hér peningamálum með því hugarfari að eyða ekki meir en að þjóðarbúið aflar í gjaldeyri fyrir það sem við framleiðum og skapa samfélagslegan hvata fyrir stöðugleika.
Lausnin felst ekki í því að stjórna hér peningamálum með rassgatinu í þágu útvaldra eins og gert hefur verið síðustu áratugi.
Ragnar Þór Ingólfsson
Stjórnarmaður í VR.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)