Afsakið meðan ég æli!

Nú berast fréttir af bankamönnum. Þeir sömu og títtnefndir eru fyrir eiginhagsmunabrúk með almannafé í vildar samningum við sjálfa sig og sína nánustu.

Ekki þótti mér ástæða til að setja íbúð okkar hjóna á nafn konunnar enda bæði skrifuð fyrir öllum lánum og skuldum í okkar búi.

Komu títtnefndir því fyrir með beltum,axlaböndum,reipi,teygjum og límbandi að missa ekki niður um sig buxurnar gagnvart sauðsvörtum almúganum sem átti sér ekki viðreisnar von ef illa færi.

Miðað við þessar fréttir má varlega áætla að þessir títtnefndu höfðu eitthvað meira á samviskunni en góðu hófi gegnir.

Afsakið meðan ég æli!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessir menn hafa enga samvisku.

Kv.Hallur

Hallur Eiríksson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 13:59

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hef illan bifur á þessum gjörningum.  

Helga Kristjánsdóttir, 31.1.2009 kl. 02:13

3 identicon

Ekkert að afsaka, er með samúðarkveisu

(IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband