Hvað með lífeyrissjóðina Gylfi ?

Hvernig væri að skoða ruglið í lífeyrissjóðunum herra hagsmunagæsla Alþýðunnar?

Eftir að hagfræðingar og bankamenn hafa margbent á að mikið ofmat á eignum eigi sér stað innan lífeyrissjóðanna er það til skammar að okkar helsta hagsmunagæsla, stingur hausnum í sandinn.

Hvernig væri að hlusta á menn eins og Robert Wade hagfræðiprófessor sem telur að eignir lífeyrissjóðanna hafi rýrnað um minnst helming.

Saka stjórn HB-Granda um að fegra bókhaldið

mynd
Gylfir Arnbjörnsson forseti ASÍ.

Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um hundruð milljón króna arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður og skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Þar segir ennfremur að tillagan setji samning um frestun endurskoðunar kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins í uppnám en rökstuðningur Samtaka atvinnulífsins standi við umsamda tímasetningar launahækkana.

„Verkalýðshreyfingin hefur lýst vilja sínum til að ræða við fulltrúa atvinnurekenda um alvarlega stöðu atvinnulífsins til að fresta þess að koma í veg fyrir enn meira atvinnuleysi og kaupmáttarskerðingu en það kemur ekki til greina að launafólk taki á sig byrðar til þess að skapa svigrúm fyrir eigendur fyrirtækjanna til að taka út svimandi háan arð."

Þá segir að það vekji ugg að í ársreikningum HB-Granda sé beitt sömu aðferðum við að blása út eignir og beitt var í fjölmörgum fyrirtækjum og fjármálastofnunum, sem hrunið hafa á síðustu mánuðum.

Óefnislegar eignir séu metnar langt um fram raunverulegt verðmæti, sem verði til þess að verðmæti og eignastaða fyrirtækisins líti út fyrir að vera mun betri en raun sé.

„Miðstjórn ASÍ áréttar sérstaklega að verkalýðshreyfingin mun ekki líða að engu sé breytt í siðferðilegri og samfélagslegri ábyrgð stjórnenda fyrirtækjanna, þrátt fyrir hrun efnahagslífsins, né að fyrirtæki haldi áfram að draga upp ranga mynd af afkomu sinni og skapa þannig möguleika á að taka út arð. Fylgst verður með reikningsskilum fyrirtækja en spurningin er hver ábyrgð löggiltra endurskoðenda er á slíkum reikningsskilum. Fyrirtækin bera samfélagslega ábyrgð og verða að axla hana."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er þvílík ormadós sem verður opnuð ef farið verður að skoða lífeyrissjóðina!  Ég vona að einhvern flokkur geri það að hagsmunamáli sínu að losa okkur úr klóm lífeyrissjóða!

ÞE (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 19:51

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

 CaterpillarOrmagryfja verður það og ekki geðsleg.Vomit 





Magnús Sigurðsson, 18.3.2009 kl. 19:57

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alltaf þykir mér jafn skondið að "lesa" heilsíðuauglýsingarnar frá lífeyrissjóðunum, þar sem þeir LÝSA því yfir að þeir hafi tapað svo og svo LITLU í bankahruninu.  Ég held að það sé verið að undirbúa jarðveginn áður en okkur eigendum lífeyrissjóðanna VERÐUR TILKYNNT UM STÓRKOSTLEGA SKERÐINGU LÍFEYRISRÉTTINDA VEGNA MIKILS FJÁRHAGSLEGS TAPS ÞEIRRA VIÐ BANKAHRUNIÐ og jafnvel það að einhverjir lífeyrissjóðir séu GJALDÞROTA.

Jóhann Elíasson, 20.3.2009 kl. 09:56

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ormagryfjan er stór og fer stækkandi. Hræddur er ég um að fyrir árslok verði margir lífeyrissjóðanna komnir í gjörgæslu ríkisins, or what´s left of it!

Arinbjörn Kúld, 21.3.2009 kl. 03:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband