11.1.2011 | 09:13
Einstakt tækifæri fyrir VR félaga.
Aðalfundur er æðsta vald félagsins og er stjórninni skylt að fara eftir samþykktum hans.
Nú er Auka aðalfundur VR í kvöld þriðjudag 11.Janúar á Hilton kl.19:30 þar sem félagsmenn geta kosið um nokkrar tillögur sem stjórninni er skylt að vinna eftir.
- Kosið verður um beinan kosningarétt félagsmanna við stjórnar og formannskjör á móti sama fyrirkomulagi og varið hefur völd þröngs hóps, sem stjórnað hefur félaginu eins og einkahlutafélag, í áratugi.
- Kosið verður um hæfi stjórnenda í lífeyrissjóðnum. En meirihluti stjórnar VR hefur hafnað því að stjórnarmenn okkar í lífeyrissjóðnum gangist undir nýjar og hertar hæfniskröfur FME.
Önnur mál:
1.Fundurinn ályktar gegn verðtryggingu.
Fundurinn beinir þeim tilmælum til stjórnar og samninganefndar félagsins að beita sér fyrir afnámi verðtryggingar.
2.
Í ljósi alvarlegra athugasemda í rannsóknarskýrslu alþingis samþykkir aðalfundur VR að stjórn VR beiti sér af fullum þunga að fram fari opinber og óháð rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðs verslunarmanna í aðdraganda og kjölfar hruns fjármálamarkaða haustið 2008. Einnig að lánveitingar sjóðsins til tengdra aðila og gjaldmiðlasamningar sjóðsins verði skoðaðir sérstaklega.
Aðalfundur felur Stjórn VR að beita sér fyrir því að upplýsingar um lánveitingar lífeyrissjóðs verslunarmanna til fyrirtækja og fjármálastofnana verði gerðar aðgengilegar sjóðsfélögum.
3.
Að félagið beiti sér fyrir lýðræðisumbótum við kjör í stjórnir lífeyrissjóða og aðkoma atvinnurekenda að Stjórn eftirlaunasjóðs félagsmanna (lífeyrissjóðs verslunarmanna) verði takmörkuð.
Mætum öll og látum í okkur heyra.
Virðingafyllst
Ragnar Þór Ingólfsson
Stjórnarmaður í VR.
Athugasemdir
Sæll Ragnar,
hvað gerðist á þessum aðalfundi og hver er staðan nú?
Kristbjörn Árnason, 15.1.2011 kl. 19:52
Sæll Kristbjörn
Það sem gerðist á Aðalfundinum var að tillagan um beinan kosningarétt félagsmanna VR var samþykkt með nær öllum greiddum atkvæðum. Mikill sigur fyrir félagið og brotið blað í sögu þess. Ekki eingöngu fyrir að veita félagsmönnum beinan kosningarétt í fyrsta skipti heldur líka að hafa fléttulista sem tryggir jafnt kynjahlutfall.
Hin málin voru naumlega felld en aðalatriðið var breytingin á kosningalögunum sem ég er að sjálfsögðu hæst ánægður með.
Kær Kveðja
Ragnar
Ragnar Þór Ingólfsson, 19.1.2011 kl. 15:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.