Af hverju í ósköpunum fara Lífeyrissjóðirnir ekki í mál við stjórnendur Kaupþings?

Þetta er "milljón dollara spurningin"

Niðurfelling ábyrgða hlýtur að skerða það sem eftir verður til að greiða kröfuhöfum "okkur".

Vafasöm lán án ábyrgða hljóta að koma verst niður á hluthöfum "okkur". 

Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði að lágmarki 60-70 milljörðum af ævisparnaði okkar á þroti Kaupþings með beinum og óbeinum hætti krosseignatengsla,skuldabréfalána og gjaldeyrissamninga.

Fjárfesting LV í Kaupþingi með beinum og óbeinum hætti var lang, lang stærsta fjárfesting sjóðsins. 

Þá kemur milljón dollara spurningin. Af hverju fara þeir ekki í mál við stjórnendur Kaupþings? 

Æ! nú man ég Gunnar Páll Pálsson formaður VR og stjórnarformaður LV var í stjórn Kaupþings og samþykkti þessa gjörnunga, konan hans vinnur þarna eins og Kona og sonur Þorgeirs Eyjólfssonar Forstjóra LV en sonurinn starfar samkvæmt enska starfsheitinu  VP - Investment Banking at Kaupthing Bank. 
Eða svo segir hann sjálfur og dóttir hans er á fruminnherjalista, sem vara.stj.maður hjá Lýsingu sem er í eigu Exista sem var stærsti eigandi Kaupþings,LV var einn stærsti eigandi Exista.
Guðmundur B. Ólafsson Lögmaður VR   Nanna E. Harðardóttir, forstöðumaður í Kaupþing banka, er eiginkona Guðmundar hún starfar við útlánaeftirlit Kaupþings (sem er innan áhættustýringar) og er sambærileg staða og Tryggvi Jónsson var í í Landsbankanum.Þau tvö voru svo á lista Morgunblaðsins yfir þá starfsmenn sem talið var að hefðu fengið lán sín afskrifuð hjá Kaupþingi.

Spurningin er ekki hvort eitthvað af þeim sjálfum hafi notið góðs af vildarsamningum og niðurfellingum ábyrgða heldur hversu mikið hagnaðist þessi hópur á vildarkjörum?

Eitt er víst að ekki hafa ofangreindir aðilar séð ástæðu til að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi hugsanlegra hagsmunatengsla og vildarkjara. Af hverju? Er eitthvað að fela? Var niðurfelling ábyrgða starfsmanna Kaupþings í þágu félagsmanna VR og LV eins og Gunnar sver við?

Vandamál lífeyrissjóðs verslunarmanna er að staða þeirra er verri en Stoðir eru í gagnvart Glitni varðandi málshöfðun. Það kemur hinsvegar ekki í veg fyrir að aðrir stórir sjóðir geti farið í mál við stjórnendur gamla kaupþings en vegna innbyrðis tengsla þessara aðila sem stjórna stærstu sjóðunum í gegnum fjárfestingar sínar og setu í LL "landsambandi lífeyrissjóða" þá hef ég ekki mikla trú á að eitthvað verði gert í þeim efnum. 

Ég vona að þeir sem vinna dag og nótt fyrir framan pappírstætarana og tæta í sundur ábyrgðir Elítunnar eins og engin sé morgundagurinn, eigi eftir að koma fram og segja hið sanna.

Kanski er ég of dómharður, kanski voru þeir Þorgeir,Guðmundur og Gunnar með mína hagsmuni að leiðarljósi allan tímann þó ég sjái það alls ekki. 

Kanski er það ekki merki um Valdahrokan í Þorgeiri að neita að tjá sig um þessa ömurlegu stöðu sjóðsins og sendir þess í stað skósveina á borð við Gunnar til að taka skellinn.

Kanski er ég bara svo barnalegur í eðli mínu að standa í þessu "skítkasti".

Kanski eru þetta hinir mestu sómadrengir. "kanski" ????

Það væri nú gaman að heyra þeirra hlið á málunum, svona til tilbreytingar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var ekki líka Ásgeir Thoroddsen í stjórn Kaupþings fyrir Frjálsa Lífeyrissjóðinn?

Ekki gleyma honum.

Jens (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 12:37

2 identicon

Eru það þetta sömu mennirnir og Bubbi söng um í gær að breyttust úr músum í rottur? Ég var nefninlega ekki alveg að ná þessu.

joi (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 12:58

3 identicon

Hvad gerir aftur eiginkona Jonasar Fr stjora FMR

Nafnlaus takk (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 13:24

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er sorglegt hvernig réttindagæslu er háttað innan Lífeyrissjóðanna.

Haraldur Baldursson, 20.1.2009 kl. 13:56

5 Smámynd: Ágúst Guðbjartsson

Það hlýtur að koma yfirlýsing frá Gunnari Páli að þetta hafi verið til að verja sjóðsfélaga

Það verður alltaf ótrúlegra og ótrúlegra að stjórn VR og margir trúnaðarráðsmenn styðji þennan mann í blindni.

Ágúst Guðbjartsson, 20.1.2009 kl. 14:16

6 identicon

Ef ekki skýrast málin hjá stjórn lífeyrissjóða, þá á að höfða mál á forustumenn þessara sjóða fyrir fjárdrátt.  Fólk á að taka á sig rögg og stofna samtök gegn þessu spillingarliði sem hefur þar tröllriðið húsum þar undanfarin ár. (Þarna á ég við lífeyrissjóð verslunarmanna sem ég er í.)

Jóhanna (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband