Veittu fólki lán en veðjuðu á veikingu!

„Þetta þarf að rannsaka, og ekki síst þátt stóru hluthafanna,“ segir Arnar Sigurmundsson formaður Landssamtaka lífeyrissjóða.

Hverjir voru stóru hluthafarnir ?

Stóru hluthafarnir voru meðal annars lífeyrissjóðirnir sjálfir. Lífeyrissjóður Verslunarmanna og Gildi voru t.d. meðal stærstu eigenda Kaupþings banka.

Sameiginlegur eignahlutur þessara tveggja sjóða.

Kaupþing 7%

Exista (stærsti eigandi Kaupþings og stór eigandi í Bakkavör) 8%

Bakkavör (stór eigandi í Kaupþingi) 15%

Af hverju blanda ég þessum tveimur sjóðum saman? Vegna þess að fjárfestingar þessara tveggja sjóða í tuttugu stærstu fjárfestingum sínum voru nánast nákvæmlega eins.

Þessi gögn er hægt að nálgast hjá Kauphöllinni yfir (tuttugu stærstu fjárfestingar LV og Gildi) Það er nóg að fá þessi gögn fyrir annan hvorn sjóðin enda fjárfestingarnar nánast þær sömu og hreyfingar fjárfestinga á milli mánaða skuggalega líkar.  

Kanski að fólk fari að átta sig á því að stjórnarseta Gunnars Páls Formanns VR í Kaupþingi var meira en óheppileg.  

Ragnar Þór 

 


mbl.is Veittu fólki lán en veðjuðu á veikingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er eins og þetta ætli engan endi að taka þessi vitleysa. 

(IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 10:16

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hitti ungan mann, sem á sér ,,vin" í bankanum.

Sá ungi spurði ,,vin" sinn, hvort ekki væri þröngt í búi hjá honum, þar sem hann hefði tekið lán fyrir ýmsu og auðvitað á Erlendu körfuláni, eins og hann hefði ráðlagt.

,,Vinurinn" fékk mikið hláturskast og sagði loks eftir að hafa náð andanum.  ,,Ertu ekki að grínast í mér maður??  Heldur þú virkilega að við höfum verið að taka hálfshöggvunarlán hjá bönkunum OKKAR????? Við vissum þetta 180 gengisstiga dæmi fyrir löngu maður minn.  Heldur þú virkilega að við séum galin??"

Sá ungi fór áður en hann missti hnefann framan í ,,vin " sinn sem nú er fyrrverandi ,,vinur".

Miðbæjaðríhaldið

Bjarni Kjartansson, 12.1.2009 kl. 13:32

3 identicon

Þetta er svakalegt, ég segi ekki annað

Gullvagninn (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband