Krókódílatár!

 „Þeir lifa í óvissu um sinn persónulega fjárhag og fjárhag fjölskyldna sinna og það er auðvitað mjög óþægileg staða,“ segir Finnur.

Það renna krókódílatár niður mínar kinnar. 

Velkomin í hóp meirilhluta þjóðarinnar sem þið eruð gott sem búin að setja á hausinn. Við höfum lifað í mikilli óvissu um fjárhag okkar frá hruni bankanna.

Meðan séreignasparnaður okkar tapaðist þegar almenningur var látin súpa seiðið af þessu glórulausa fjármálasukki, meðal annars með því að láta peningamarkaðssjóðina fjárfesta í vonlausum bréfum sem " Elítan vildi losna við " vöru lánin okkar yfirtekin með öllum veðum,vöxtum og vaxtavöxtum.

Niðurfelling Ábyrgða!

Af hverju voru bankarnir ekki skikkaðir til að draga tap séreignasjóðanna frá höfuðstól skuldanna sem mikill meirihluti fólks glímir nú við enda með allt sitt í sama bankanum?


mbl.is Lykilstjórnendur bankans lifa í óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Guðbjartsson

Það er dálítið mikið af svona samúðar fréttum fyrir þá sem sökktu skipinu þessa dagana.

Það er jóla árróðursstríð í gangi og fjölmiðlar eru en og aftur að sýna hverja þeir eru vinnu fyrir.

Ágúst Guðbjartsson, 20.12.2008 kl. 15:18

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég held nú að um kaldhæðni sé að ræða hjá mbl.is. Það besta er hins vegar að viðmælendur átta sig ekki á því og tala við blaðamann og halda að þeir séu að taka þá alvarlega!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 21.12.2008 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband